Svæðisgarðurinn Snæfellsnes boðar til Upplýsinga- og samráðsfundar um endurheimt votlendis í félagsheimilinu Breiðabliki fimmtudagskvöldið 30. ágúst kl. 20.30. Markhópurinn eru landeigendur, bændur og bæjar/sveitastjórnendur. Allir eru velkomnir.

Fjallað verður um endurheimt votlendis frá nokkrum sjónarhornum; vísindalegri þekkingu, verklegum framkvæmdum, regluramma og frá sjónarhóli bænda. Umræður verða vonandi líflegar.

Dagskrá:

Loftslagsmál, endurheimt votlendis og Svæðisgarðurinn Snæfellsnes
Ragnhildur Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Svæðisgarðsins Snæfellsnes

Vísindin á bak við endurheimt votlendis
Dr. Hlynur Óskarsson dósent við Landbúnaðarháskóla Íslands

Hvernig er votlendi endurheimt?
Sunna Áskelsdóttir og Iðunn Hauksdóttir sérfræðingar Landgræðslunnar

Reglur og lög um framræsingu lands
Árni Bragason landgræðslustjóri

Kaffihlé

Sauðfjárbændur og loftslagsmál
Unnsteinn Snorri Snorrason, framkvæmdastjóri Landssamtaka sauðfjárbænda

Hlutverk Votlendissjóðsins fyrir landeigendur
Eyþór Eðvarðsson stjórnarformaður Votlendissjóðsins

Umræður